Sætasta ljón í heimi!!Ingibjörg Íris

OH þið verðið að skoða þetta!!!!

Soviet girl!Ingibjörg Íris


Ein góð frá því í æsku. Það sem er virkilega fyndið við þessa mynd og dregur fram endalausar minningar er þessi dýrindis peysa:) Amma Ingibjörg gaf mér hana þegar ég var lítil og ég var, verð ég að segja, ekki par hrifin. En ég varð að gjöra svo vel að vera í peysunni. Það sem mér fanns svo óheillandi við peysuna var myndin af babúskunni og já, hvernig get ég gleymt.. fjólublái liturinn ! úff:D Það sem verra er að ég vissi ekki einu sinni hvað stóð á henni, og amma örugglega ekki heldur:) Soviet girl! yebb! Soviet Girl!:D Gaman hvað hlutir og myndir geta dregið fram endalaust margar góðar minningar:D og by the way þá er peysan kannski ekkert svo slæm.. nema kannski textinn;) Kannski að maður þakki fyrir sig, þó það sé nú kannski svoldið seint.
Elsku Amma Ingibjörg takk fyrir mig, þessi peysa er yndisleg:*
Ingibjörg Íris

sjipp og hoj!Ingibjörg Íris

Ég vil byrja á því að biðjast velvirðingar á framtaksleysi mínu hérna á þessari mögnuðu bloggsíðu. En ég get ekki gert liti og fínerí!:)
Það er allt við það sama hérna í Debrecen, maður er bara alltaf að læra. En það skánar núna eftir 2 vikur, þá gæti maður jafnvel skottast eitthvað í viku eða svo..:) Veðrið hérna er að verða svo yndislegt, vorið er alveg að skella á.. á meðan fyrsta fréttin á mbl er sú að það sé opið í hlíðarfjalli og 7 stiga frost! mahaha
Við skemmtum okkur konunglega í Austurríki á snjóbretti og ég er einmitt búin að smella nokkrum góðum myndum inn á facebook frá ferðinni. !
Í gær skellti ég mér í bíó myndina Sweeney Todd; the demon barber on fleet street eða eitthvað þannig, með Johnny Depp, sem er ekki frásögu færandi nema það að sagan minnti mig ansi mikið á smásögu sem ég Eva María og fleiri ágætir nemendur árbæjarskóla gerðu í hópnum "Rússnesk Rúlletta" sem var stjórnað af engri annarri en Guðnýju á þemadögum í árbæjarskóla, 1999 minnir mig, hver man ekki eftir Guðnýju! Við verðum endilega að reyna að grafa upp þessa sögu okkar, hún var ansi mögnuð.. minnir mig;D
GMG ég er svo mikið nörd!.. ég er í valáfanga í körfubolta og það er náttúrulega allra þjóða kvikindi hérna... og það var strákur frá Tævan með mér í hóp.. og ég ætlaði að vera voða sniðug að segja honum að Tævan á íslensku væri hægt að nota þegar maður vill kalla einhverja konu eða stelpu Tík..(Bitch) .. hóst... ég veit ég er bjáni.! og hann var ekki alveg að skilja mig.. og ég held því miður að hann hafi móðgast. Svo bætti ég gráu ofan á svart þegar ég reyndi að útskýra mál mitt með því að líkja þessum orðaleik við nafnið á plánetunni Uranus sem hljómar eins og Your Anus á ensku... (ég veit enþá verra!!) og hann var ekkert að fatta hvað ég var að tala um.. en ég hélt stanslaust áfram þangað til hann þóttist fatta.. svo stóð hann upp og yfirgaf svæðið. Honum langaði pottþétt að gera gúggú merkið (svona þegar maður snýr vísifingri í hringi við eyrað á sér)
ég get verið algjörlega félagslega heft stundum..
En bless í bili and dont go up Uranus tævan þín!
ingibjörg

Það skildi þá aldrei verða....Sólveig Dögg

... að  mar sé sestur við skriftir hér á hanastélssíðunni okkar Svalur Hef nú lengi ætlað að koma með eina færslu eða svo en sú framkvæmd alltaf uxið mér til höfuðs fyrr en nú! Lífið gengur sinn vanagang hér höfn kaupmanna og mér finnst alveg frábært að vera komin hingað aftur Brosandi.

Ég er búin að fá 3 heimsóknir so far þessa önnina og var fyrsta heimsóknin frá henni Sigrúnu minni sem dvaldi hér hjá mér í viku áður en hún hélt suður á bógin til Barcelona. En hún ætlar einmitt að skiptinemast þar þessa önnina. Næstu helgi eftir kom hann faðir minn í heimsókn.

Bæði Sigrún og Pabbi voru svo einkar lánsöm að fá að drattast með mér í dýragarðinn hérna í köben en ég get vægast sagt, sagt að ég sé tíður gestur þar á bæ ( enda komin með árskort) Svalur Þriðja heimsókninn var svo frá heinni Sissú en hún skiptinemaðist hérna með mér síðustu önn en hún var því miður ekki þess heiðurs aðnjótandi að fá að fara með mér í garðinn minn en skelltum við okkur hins vegar á okkar hjartkæra Kulorbar okkur til ómældrar hamingju Hlæjandi 

þessi er hress

ljónsi einkvað pirr

Ég vil taka fram að þessa félagar dvelja ekki í garðinum góða en sökum þess að ég virðist hafa gleymt myndavélasnúrunni minni heima á íslandi Öskrandi þá leyfi ég þeim að fylgja hér. En það er sosem allt í lagi er ekkert búin að taka margar myndir.


Páskarnir nálgast óðum og er ég búin að planileggja páskafrí til þriggja borga að þessu sinni. Fyrst flýg ég til Milanó og tek svo rútu til Lugano í Sviss. En þar hún Sissú einmitt núna og ætla ég að skoða þessar tvær borgir með henni í 3 daga. Síðan fljúgum við báðar yfir til Barcelona og hittu Maike þýsku vinkonu okkar frá síðustu önn.. og vonandi sé ég hana sigrúnu sem mest á meðan Hlæjandi

Segji þetta gott að sinni en ætla að búa til könnun sem er skilduþátttaka í Brosandi

sæl að sinni


Hviss bamm búmm :)Eva María, Ingibjörg og Sólveig

Hæ hæ

Ég er stödd hérna í skólanum og er að fara í tíma innan skamms. Allt að gerast. Helgin var rosa fín. Á föstudagskvöldið fórum við Kalli að horfa á Fjölnisstrákana spila sem var ekkert svakalega spennandi. Þeir töpuðu með 50 stigum eða eitthvað álíka, uss. Þeir verða að fara að hysja upp um sig buxurnar ef þeir ætla ekki að falla. Okkur gengur ekkert allt of vel heldur þessa dagana. Það eru þrír leikir eftir hjá okkur og nú verðum við að fara að spýta í lófana, leikur við Kr á morgun. Eftir leikinn fórum við Kalli út að borða á Caruso og borðuðum alveg frábært pasta og eftir það bara heim að slappa af. Kalli gaf mér rosaflottan kjól sem hann valdi sjálfur, nærbuxur og eyrnalokka í valentínusargjöf og ég gaf honum stuttermabol og körfuboltabol fyrst kallinn er nú byrjaður í körfunni Glottandi.

Á laugardagskvöldið fór ég til Evu Daggar og við elduðum alveg rosalega góðan kjúklingarétt og svo var smá teiti eftir það sem var mjög gaman. Ég kom heim klukkan sex þannig maður var ansi þreyttur á sunnudeginum sem fór að mestu í leti. Um kvöldið kíkti ég svo á Evu Dögg og Sigga sem voru að horfa á ansi brutal mynd og ég fékk martraðir um nóttina hehe. Ég er eiginlega alveg hætt að horfa á svona myndir, verð svo skíthrædd eftir þær Tala af sér.

Bæti meira við á eftir, verð að skella mér í tíma Ullandi.

Eva María

Er á lífi!Eva María, Ingibjörg og Sólveig

Halló halló

Það er orðið ansi langt síðan hefur verið ritað hér inn, það eru meira að segja farnar að berast kvartanir vegna bloggleysis Hissa. Við verðum að reyna að bæta úr því stúlkur mínar. Komið nýtt ár og strax komið fram í febrúar uss. Veðrið ekki alveg að gera sig þessa dagana. Alltaf gaman að fá snjóinn en held þetta sé orðið ágætt í bili Brosandi. Ég var einmitt að pæla í því að maður fer alltaf í sólarlandaferðir á sumrin þegar er gott veður hér. Maður ætti miklu frekar að fara akkúrat á þessum tíma. Væri alveg til í að liggja á sólarströnd núna með einn eitraðan koktail. Það er samt frábært að það er orðið bjartara lengur á daginn og svo fer maður bara að telja dagana til sumarsins.

Maður er að verða 24 ára eftir 3 mánuði, er ekki alveg að ná því. Það er rosalegt hvað tíminn líður hratt eftir tvítugt og svo enn hraðar eftir 30, 40 o.s.frv.

Ég er núna komin ansi langt á veg með félagsfræðina, á bara um  22 einingar eftir af 90, hef ekki alveg ákveðið hvað ég geri eftir það. Maður verður að komast eitthvað út fyrir landið og kynnast öðrum heimi en litla Íslandi þótt að það sé yndislegt. Allir að yfirgefa svæðið. Gunna Dóra vinkona mín úr félagsfræðinni ætlar að taka sér smá frí frá náminu og flytja til Noregs, gaman fyrir hana!

Ég fór í bíó í gær með Effu, stelpu úr körfunni. Myndin heitir Atonement og var vægast sagt mjög spes. Ég bjóst við allt öðru en hún var skuggalega hæg og þar að auki rúmir tveir tímar, ekki besta myndin sem hægt er að fara á á þessum tíma kvölds en hún var vel leikin en það hefði mátt gerast eitthvað meira krassandi. Það voru þrír sem löbbuðu út þegar um hálftími var búin hehe Glottandi.

Ég er í frí í dag, engin skóli né vinna. Er að pæla í að taka aðeins til og fara í gegnum þessa fatahrúgu sem er að flæða út úr herberginu. Ótrúlegt hvað manni finns maður alltaf vanta föt en samt er maður að drukkna í þeim. Maður verður bara að vera duglegur að endurnýja og taka eldri föt úr umferð. Held það sé alveg komin tími á kolaportsdag von bráðar.
Kalli er byrjaður í utandeildinni í körfubolta, alveg magnað. Hann er að fara að spila sinn fyrsta leik í kvöld, það verður fróðlegt að sjá Ullandi

Ég er búinn að skella inn myndum frá desember, endilega kíkjið á!

Læt þetta nægja að sinni, ætla að reyna að standa mig betur í blogginu hér eftir!

bæjó

Eva María

Frjáls :DSólveig Dögg

Tíminn líður hratt á gervihanttaöld Ullandi
Ótrúlegt alveg, prófin bara búin og ég er að fara að halda heim á leið eftir viku
Nú loksins þegar ég er hætt að hoppa inní ragnar lestar og planta mér inn í vitlausar kennslustofur er tími minn hérna á þrotum!

Fór í 2 próf á þessum seinni hluta annarinnar Transport and tourism economics og Macroeconomis. Og Eva ég notaði lærutæknina þína fyrir macró prófið svaf í 3 tíma og lærði næstum alla nóttina haha og vááááá þú ert hetja að geta þetta ég var alveg búin á því eftir prófið og svaf útí hið óendanlega! 

Skellti mér svo á skauta á Kongens Nytorv og fór svo í árángursríkan verslunarleiðangur í dag Hlæjandi

Mamma kemur svo í heimsókn á sunnudaginn og hlakkar mér alveg endalaust til Hlæjandi og verður til miðvikudags, svo kem ég heim á laugardag! Það á eftir að vera spes, flytja frá nýjum stað á annan nýjan stað Óákveðinn en samt bara gaman, jahérna hér.

Bið að heilsa klakabörnin mín 
Sólveig hin fjálsa


 

Svekkjandi tap og síðasti skóladagurinn!!!Eva María

Hæ hæ

Hvað er að frétta? Ég sit inn í tölvuveri í skólanum, ætti að vera að læra EN blogga bara í staðinn. Síðasti skóladagurinn er upprunninn sem er svakalega skrítið. Þessi önn hefur gjörsamlega flogið áfram og er búin áður en maður veit af. Gengur frekar illa að einbeita sér að prófalestrinum en ef þið kunnið einhver ráð við því myndi ég glöð þiggja þau Glottandi.

En að öðru. Í gær töpyðum við naumlega fyrir Haukum sem eru Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára. Staðan var 63:63 eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að framlengja. Þar höfðu Haukar betur og unnu okkur með tveimur stigum 73:71. Þrír af okkar lykilleikmönnum voru farnir út af með 5 villur og þar á meðal erlendi leikmaðurinn okkar Hún Slavica. Frekar sárt að tapa svona en þetta fer bara í reynslubankann hjá okkur enda ekki margar vanar að spila svona leiki. Við stóðum okkur samt frábærlega að mínu mati og við tökum bara næsta leik sem er á móti KR næsta laugardag Brosandi.

Bergur bróðir, Helena og Matthías Már eru væntanleg á klakann á morgun. Þau eru nú búsett í Þýskalandi og koma í vikuheimsókn. Hlakka ekkert smá til að sjá þau og knúsa litla frænda.

Helgin verður eflaust í rólegri kantinum og fer að mestu leyti í lærdóm og körfubolta. Svo erum ég og Kalli að spá í að jólaskreyta garðinn ef veður leyfir. Það er nú farin að færast smá jólastemming yfir mann og er ég mikið fyrir að kveikja á kertum á þessum árstíma.

Sólveig: Mér líst rosalega vel á kolaportsdag í janúar. Þá getur maður skipt út gömlu fötunum og keypt sér svo ný á útsölunum Koss.

Ég er að hugsa um að láta þetta nægja í bila. Er að fara í næstseinasta tímann á önninni Hissa.

Sæl að sinni



EN bloggSólveig Dögg


Stelpur... hvað er í gangi með þetta blogg okkar... er farin að hallast að hugmyndinni hennar Sigrúnar að síðan okkar sé andsetin! allt á heyfingu, tekur 5 tíma að fara inn í umsjónarkerfið og teljarinn og atburðarteljarinn í fuxxxi! Jahérna hér

En já nú er komin prófatíð og fannst mér þá tilvalið að skella inn nokkrum myndum og eru þær á flegiferð inn eins og stendur Hlæjandi Það tekur reyndar eilífiðina að setja þær inn þannig að ég set bara nokkrar í hvert albúm. Eva þú verður bara að djoina okkur Ingibjörgu og stærstum hluta jarðarbúa og fá þér facebook ef þú vilt sjá fleiri myndir þar tekur bara nokkrar sek að setja inn helling af myndum Glottandi

En girlz - hvað segjið þið um kolaportsdag í janúar!! vantar að losna við alveg helling af fötum, er ekki komin tími á það??

En Eva hvort eigum við að fara á Palla ball eða Jet black Joe á broadway 21 des. mér finnst ekki hægt að láta mann velja á milli beggja þeirra grrr.. langar svoooooo á bæði!! - held nú samt að Palli minn verði fyrir valinu ;)

En nú er ég bara alveg að fara að koma heim Hlæjandi eftir 2,5 viku, fer í 2 próf 4 og 6 des svo er ég frjáls Svalur og finnst mér réttast að nefna að ég er búin að ná dönskuáfanganum sem ég er búin að vera í þessa önnina - held nú það!!

En

Vi ses

Hilsen fran Danmark
Sólveig


Afmæli!Eva María

Hæ hæ

Vildi bara nota tækifærið og óska Evu Dögg til hamingju með afmælið. Srúlkan er orðin 23 ára gömul. Eigðu góðan dag félagi Hlæjandi.

Innskráningar kubbur

The CocktailQueens!

  • Nafn: Eva María, Ingibjörg og Sólveig
  • Atvinna: Nemar
  • Hjúskaparstaða: Trúlofuð, Trúlofuð, Einhleyp
  • Um mig: Við erum þrjár úr Ártúnsholtinu eiturhressar á kanntinum. Eva er stödd á Íslandi í félagsfræði, Sólveig í ferðamálafræði sem skiptinemi í kóngsins Köben og Ingibjörg í læknisfræði í Ungverjalandi

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hver er þín helsta fyrirmynd?